Leitarvélabestun á Íslandi: handbókin fyrir lítil fyrirtæki

Hvað virkar í raun á íslenskum markaði, í hvaða röð þú átt að gera það og hvað þú getur sleppt.

Leitarvélabestun Meðstofnandi Galdrasmiðjunnar Birt 2026-09-0410 mín lestur
Messingsextant á ljósum múrfleti, spegillinn grípur appelsínugula birtu

Í stuttu máli

  • Á íslensku er samkeppnin um leitarorð margfalt minni en á ensku. Það er stærsta tækifærið.
  • Google fyrirtækjasnið skilar oftast mestu fyrir minnstu vinnuna.
  • Ein góð síða um hvert efni slær út tíu þunnar síður.
  • Hraði og símaútlit eru röðunarþættir, ekki aukaatriði.
  • Reiknaðu með þremur til sex mánuðum. Sá sem lofar árangri á tveimur vikum er að selja þér eitthvað annað.

Leitarvélabestun á Íslandi er auðveldari en fólk heldur, af einni ástæðu: það er nánast enginn að gera hana almennilega á íslensku. Á ensku keppir þú við milljónir síðna um hvert leitarorð. Á íslensku eru oft tíu til fimmtíu síður sem eiga við, og margar þeirra eru gamlar og lélegar.

Hér er röðin sem við mælum með. Hún er raðað eftir því hversu mikið hvert skref skilar miðað við vinnuna sem það kostar.

1. Google fyrirtækjasnið, fyrst af öllu

Ef fyrirtækið þitt hefur heimilisfang eða þjónustusvæði þá er þetta stærsti einstaki ávinningurinn og hann er ókeypis. Fylltu út allt: flokk, opnunartíma, símanúmer, þjónustulista, myndir. Bættu við nýrri mynd mánaðarlega. Svaraðu öllum umsögnum, líka þeim neikvæðu.

Fyrir mörg lítil fyrirtæki á Íslandi kemur meirihluti símtala í gegnum kortið, ekki í gegnum vefinn.

2. Ein síða fyrir hvert það sem þú selur

Algengasta mistökin sem við sjáum: ein síða sem heitir Þjónusta og telur upp allt sem fyrirtækið gerir. Google veit þá ekki hvað síðan fjallar um og röðunin verður engin.

Í staðinn: ein síða fyrir hverja þjónustu, hver með sitt leitarorð í fyrirsögn, slóð og fyrstu málsgrein. Vefstofa sem selur bæði vefi og sjálfvirkni á að hafa tvær síður, ekki eina.

3. Skrifaðu eins og fólk leitar

Íslenska er beygingamál og það hefur áhrif. Fólk leitar að „hvað kostar heimasíða“ en ekki „verðskrá vefsíðugerðar“. Notaðu orðin sem viðskiptavinurinn notar, ekki orðin sem greinin notar innbyrðis.

Athugaðu líka hvenær fólk leitar á ensku. Ferðaþjónusta, tækni og útflutningur fá oft stærri hluta fyrirspurna á ensku en eigendur halda. Það sést í Search Console.

Sá sem skrifar fyrsta almennilega svarið á íslensku um sína grein á það svæði í mörg ár.

4. Tæknilegi grunnurinn

  • Hraði. Vefur sem hleðst á undir einni sekúndu raðast betur og selur betur. Myndir eru langoftast sökudólgurinn.
  • Símaútlit. Google raðar eftir símaútgáfunni, ekki tölvuútgáfunni.
  • Slóðir sem skiljast: /thjonusta/vefverslun en ekki /page?id=42.
  • Titlar og lýsingar á hverri síðu, ólíkir hver frá öðrum.
  • Schema, svo Google viti hvort þú ert veitingastaður, verkstæði eða þjónusta.
  • Sitemap og robots.txt sem loka ekki á neitt sem á að finnast.

5. Efni sem svarar spurningum

Hver grein á að svara einni raunverulegri spurningu sem viðskiptavinur spyr. Skrifaðu niður tíu spurningar sem þú færð í símann í hverri viku. Þar er efnisplanið þitt komið.

Þetta virkar tvöfalt núna: sömu greinar sem raðast á Google eru það sem gervigreindarkerfin vitna í þegar einhver spyr þau.

6. Tenglar og umtal

Á Íslandi eru tenglar auðveldari en víðast hvar. Fagfélög, birgjar, samstarfsaðilar, staðbundnir fjölmiðlar og styrktaraðilar allir tengja fúslega ef þú biður. Tíu íslenskir tenglar frá raunverulegum aðilum eru meira virði en hundrað keyptir.

Hvað þú mátt sleppa

  • Að telja leitarorð eða reikna þéttleika. Það hefur ekki virkað í mörg ár.
  • Að kaupa tengla. Á litlum markaði sést það og það getur skaðað.
  • Að skrifa tuttugu þunnar síður um sama efnið.
  • Að elta hvert einasta stig í tólum eins og Lighthouse. Farðu í grænt og haltu áfram.

Hvenær sérðu árangur

Ný síða á nýju léni þarf yfirleitt þrjá til sex mánuði til að finna sæti. Grein á rótgrónu léni getur raðast á tveimur til fjórum vikum. Google fyrirtækjasnið getur skilað símtölum sama daginn.

Algengar spurningar

Hvað kostar leitarvélabestun á Íslandi?

Úttekt kostar yfirleitt 80.000 til 250.000 kr. Áframhaldandi vinna er á bilinu 30.000 til 150.000 kr á mánuði eftir umfangi. Mikið af grunninum getur þú gert sjálf eða sjálfur með þessari grein.

Þarf ég að skrifa blogg?

Ekki blogg í gamla skilningnum. Þú þarft síður sem svara spurningum viðskiptavina þinna. Hvort þær heita greinar, fréttir eða leiðbeiningar skiptir engu máli.

Virkar SEO ennþá þegar allir spyrja gervigreind?

Já, en það er ekki lengur nóg eitt og sér. Sami grunnur nýtist í báðum: skýr uppbygging, gott efni og aðgengilegur vefur. Munurinn er að gervigreindin vitnar í heimildir frekar en að raða tenglum.

Um höfundinn

er meðstofnandi galdrasmiðjunnar. Hann smíðar vefi og vefverslanir fyrir íslensk fyrirtæki og skrifar hér um það sem virkar í raun: hraða, leitarvélabestun, sýnileika í gervigreind og sjálfvirkni.

Spurningar um þessa grein má senda á hallo@galdrasmidjan.is.

Viltu að við skoðum þinn vef?

Við tökum stutt spjall, skoðum stöðuna og segjum þér hvað borgar sig að laga fyrst. Það kostar ekkert.

Fá fast verðtilboð