Af hverju vefurinn þinn er ósýnilegur gervigreind

Fjórar algengar ástæður fyrir því að gervigreindarkerfin sjá ekki vefinn þinn, og hvernig þú athugar hverja þeirra á tíu mínútum.

Gervigreindarleit Meðstofnandi Galdrasmiðjunnar Birt 2026-09-055 mín lestur
Tóm glerkúpa með messingbrún stendur ein á ljósum múrfleti

Í stuttu máli

  • Efni sem hleðst með JavaScript er ósýnilegt flestum gervigreindarróbotum.
  • Margar hýsingar og öryggislausnir loka á þá sjálfkrafa, án þess að þú vitir af því.
  • Efni á bak við innskráningu eða eyðublöð er ekki lesið.
  • Myndir af texta eru ólæsilegar. Verðskrá sem er PDF eða mynd er ósýnileg.
  • Þú getur athugað þrennt af þessu sjálf eða sjálfur á tíu mínútum.

Fyrirtæki sem er hvergi nefnt í gervigreindarsvörum heldur oft að vandinn sé efnið. Stundum er hann tæknilegur og einfaldari en það: vélin kemst ekki að efninu.

1. Textinn hleðst með JavaScript

Margir nútímavefir senda tóma síðu og fylla hana svo með JavaScript. Google ræður oftast við það. Flestir gervigreindarróbotar keyra ekki JavaScript og sjá því tóma síðu.

Prófið: slökktu á JavaScript í vafranum þínum og hlaðið vefinn. Það sem hverfur er ósýnilegt vélinni.

2. robots.txt lokar á þá

Farðu á vefslóð.is/robots.txt. Ef þar stendur Disallow fyrir GPTBot, ClaudeBot, PerplexityBot eða Google-Extended þá hefur einhver, oft vefumsjónarkerfið sjálft, lokað á þau.

Þetta er stundum meðvituð ákvörðun til að verja efni. En ef þú vilt að fólk finni þig í gegnum gervigreind þá ertu að loka dyrunum sem þú vilt að sé gengið inn um.

3. Hýsingin eða vörnin lokar á þá

Sumar öryggislausnir og efnisdreifikerfi loka sjálfkrafa á gervigreindarróbota, og sú stilling er oft sjálfgefin án þess að nokkur hafi valið hana. Þetta sést ekki í robots.txt, þú þarft að skoða stillingarnar hjá þjónustuaðilanum.

4. Efnið er falið

  • Verðskrá sem PDF eða mynd. Vélin les hana illa eða alls ekki.
  • Upplýsingar á bak við innskráningu eða eyðublað.
  • Mikilvægur texti inni í myndum, til dæmis matseðlar sem eru skannaðir.
  • Efni sem birtist bara þegar þú smellir á flipa sem hleður því eftir á.
Ef þú sérð efnið aðeins þegar allt er kveikt, þá sér vélin það aldrei.

Tíu mínútna prófið

  1. Slökktu á JavaScript og hlaðið forsíðuna. Sést textinn?
  2. Opnaðu vefslóð.is/robots.txt og leitaðu að Disallow.
  3. Leitaðu að mikilvægustu verðunum þínum í Google með site: leit. Finnast þau sem texti?
  4. Spurðu ChatGPT hvað fyrirtækið þitt gerir og hvað það kostar. Berðu svarið saman við raunveruleikann.

Ef eitthvað af þessu klikkar þá er það lagfæranlegt, oftast á nokkrum klukkustundum. Það er miklu ódýrara en að skrifa fleiri greinar sem enginn les.

Algengar spurningar

Á ég að hleypa gervigreind inn?

Ef þú lifir á því að fólk finni þig, þá já. Ef þú selur efnið sjálft, til dæmis áskriftarefni, þá er önnur umræða.

Skaðar það hraðann að laga þetta?

Nei, þvert á móti. Vefur sem sendir raunverulegan texta strax er bæði hraðari fyrir fólk og læsilegri fyrir vélar.

Hvað ef vefurinn minn er í lokuðu kerfi?

Þá geturðu samt lagað robots.txt og bætt við llms.txt. Ef kerfið sendir ekki texta í HTML er það stærri ákvörðun og við getum metið hana með þér.

Um höfundinn

er meðstofnandi galdrasmiðjunnar. Hann smíðar vefi og vefverslanir fyrir íslensk fyrirtæki og skrifar hér um það sem virkar í raun: hraða, leitarvélabestun, sýnileika í gervigreind og sjálfvirkni.

Spurningar um þessa grein má senda á hallo@galdrasmidjan.is.

Viltu að við skoðum þinn vef?

Við tökum stutt spjall, skoðum stöðuna og segjum þér hvað borgar sig að laga fyrst. Það kostar ekkert.

Fá fast verðtilboð