Efnissmiðjan

Vefur án efnis eldist á þremur mánuðum. Við skrifum, myndum og birtum svo vefurinn þinn haldi áfram að vinna eftir að hann fer í loftið.

Frá 79.000 krá mánuði
Fá fast tilboð Sjá verkin

Flest fyrirtæki eiga ágætis vef sem enginn hefur snert í tvö ár. Efnissmiðjan er lausnin á því: fast efnisplan, greinar sem finnast á Google og í gervigreindarleit, myndir sem líta ekki út eins og myndabanki, og einhver sem ber ábyrgð á að þetta gerist.

Hvað við gerum

  • Greinar og fréttir, skrifaðar til að finnast og til að vera lesnar
  • Vörutextar og þjónustutextar sem selja
  • Myndir: raunverulegar ljósmyndir eða gervigreindarmyndir þar sem þær eiga við
  • Stutt myndbönd fyrir vef og samfélagsmiðla
  • Mánaðarlegt efnisplan svo enginn þurfi að finna upp á einhverju á síðustu stundu

Af hverju þetta virkar

  • Efni sem svarar raunverulegum spurningum viðskiptavina er það sem Google og gervigreindin vitna í
  • Ný grein á tveggja vikna fresti heldur vefnum lifandi í augum leitarvéla
  • Textar skrifaðir af fólki sem skilur reksturinn hljóma ekki eins og vél

Verð

Stakur pakki

Frá 89.000 kr

Til dæmis fjórar greinar eða heil endurskrifuð þjónustusíða.

Áskrift

Frá 79.000 kr á mán.

Fjórar greinar, myndir og birting, með mánaðarlegu plani.

Fullt efnisumsjón

Eftir umfangi

Efni, samfélagsmiðlar og póstlisti í einum pakka.

Öll verð eru án vsk. Fast tilboð fylgir alltaf fyrsta samtali og breytist ekki eftir á.

Algengar spurningar

Skrifið þið með gervigreind?

Já, og við felum það ekki. Munurinn er að fólk sem þekkir reksturinn þinn stýrir, lagar og ber ábyrgð á hverju orði. Texti sem enginn hefur lesið yfir hljómar alltaf eins og vél.

Á íslensku eða ensku?

Hvoru tveggja. Flest íslensk fyrirtæki þurfa íslensku fyrst, en ferðaþjónusta og útflutningur fá ensku líka.

Hvað ef við eigum myndir nú þegar?

Frábært, þá notum við þær. Raunverulegar myndir af þínu fólki og þínum vörum slá alltaf út allt annað.

Segðu okkur frá verkefninu

Þú færð fast verðtilboð samdægurs eftir stutt spjall. Engin skuldbinding og ekkert tækniblaður.

Fá fast verðtilboð