Gervigreindarráðgjöf

Þú veist að gervigreind skiptir máli en ekki hvar á að byrja, hvað kostar hvað og hvernig þú notar hana án þess að leka gögnum. Við svörum því á einum degi.

Frá 149.000 krvinnustofa með teyminu
Fá fast tilboð Sjá verkin

Þetta er eina þjónustan okkar þar sem þú kaupir skýrleika frekar en afhendingu. Við skoðum hvernig fyrirtækið vinnur í dag, bendum á hvað borgar sig fyrst og hvað er tímasóun, og skiljum eftir vegvísi sem þú getur unnið eftir hvort sem þú ræður okkur áfram eða ekki.

Hvað við förum yfir

  • Hvaða verk í fyrirtækinu gervigreind vinnur vel og hvaða verk hún vinnur illa
  • Hvaða tól henta, hvað þau kosta í raun og hvað þau kosta í tíma
  • Reglur um gögn: hvað má fara inn í spjallmenni og hvað ekki
  • Þjálfun starfsfólks svo þetta verði notað en ekki gleymt
  • Sýnileiki í gervigreindarleit: hvað ChatGPT og Google segja um þig núna

Hverju þú situr eftir með

  • Forgangsraðaðan lista yfir það sem borgar sig, með kostnaði og tímamati
  • Skriflegar reglur um gagnaöryggi sem þú getur sett í starfsmannahandbókina
  • Tvö til þrjú tilbúin dæmi sem teymið getur notað strax á mánudegi

Verð

Vinnustofa

149.000 kr

Hálfur dagur með teyminu, á staðnum eða á fjarfundi.

Úttekt og vegvísir

249.000 kr

Vinnustofan auk skriflegrar úttektar og forgangsraðaðrar áætlunar.

Áframhaldandi ráðgjöf

Frá 49.000 kr á mán.

Mánaðarlegur fundur, eftirfylgni og aðstoð þegar eitthvað nýtt kemur upp.

Öll verð eru án vsk. Fast tilboð fylgir alltaf fyrsta samtali og breytist ekki eftir á.

Algengar spurningar

Er þetta bara fyrir tæknifyrirtæki?

Nei, þvert á móti. Mesti sparnaðurinn er yfirleitt hjá fyrirtækjum sem gera hlutina handvirkt í dag: verkstæðum, verslunum, veitingastöðum, þjónustufyrirtækjum.

Þurfum við að kaupa dýr kerfi?

Oftast ekki. Flest fyrirtæki byrja á tólum sem kosta nokkur þúsund krónur á mánuði. Við segjum þér hvenær það borgar sig að fara lengra.

Hvað með gögnin okkar?

Það er stór hluti vinnustofunnar. Þú færð skriflegar reglur um hvað má setja inn í almenn spjallmenni og hvenær þarf lokað umhverfi.

Segðu okkur frá verkefninu

Þú færð fast verðtilboð samdægurs eftir stutt spjall. Engin skuldbinding og ekkert tækniblaður.

Fá fast verðtilboð